| Heimir Eyvindarson

Agger vill vera áfram á Anfield

Daniel Agger hefur ítrekað þá ósk sína að hann vilji helst af öllu vera áfram hjá Liverpool, en útilokar þó ekki að hann gæti verið á förum. Samningaviðræður milli danska miðvarðarins og Liverpool eru ekki enn til lykta leiddar, en hann á nú 18 mánuði eftir af samningi sínum.

Lífið á Anfield hefur ekki verið eintómur dans á rósum fyrir Agger. Eftir að hafa velt Sami Hyypia úr sessi sem kjölfesta í vörninni við hlið meistara Jamie Carragher meiddist Agger illa og var frá keppni í heilt ár. Þegar hann hafði loks náð sér af meiðslunum hafði Slóvakinn Martin Skrtel tekið sæti hans í byrjunarliðinu og það var því ekki fyrr en Skrtel meiddist nú í október að Agger fór að spila á nýjan leik.

Agger hefur látið í það skína fyrr í vetur að hann kunni að vera á förum frá félaginu og í dönskum fjölmiðlum hefur nokkrum sinnum verið sagt frá því að hann hygist jafnvel kaupa upp samning sinn við félagið. Þessar vangaveltur leiddu til sögusagna þess efnis að bæði Real Madrid og AC Milan hefðu áhuga á að krækja í kappann þegar janúarglugginn opnar.

Þegar Agger er spurður út í framtíð sína segir hann að hann vilji helst af öllu vera hjá Liverpool.

,,Ég vonast til að vera hér áfram, en ég veit ekki hvað það er sem tefur samningaferlið milli mín og félagsins. Í þeim efnum er boltinn algjörlega hjá félaginu, það eina sem ég spái í er að standa mig á vellinum."

,,Ég er að reyna að bæta minn leik og mér finnst það ganga ágætlega, ég færist nær mínu gamla formi með hverjum leik."

,,Auðvitað vil ég vera hér áfram, ef það er einhver möguleiki, en eins og ég segi þá er boltinn hjá vinnuveitendum mínum hjá félaginu. Þeir stjórna ferðinni í samningaviðræðunum, vonandi kemur eitthvað gott út úr því."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan