| Sf. Gutt

Af málefnum Steven Gerrard

Eins og flestir vita var Steven Gerrard handtekinn í gær ásamt fimm öðrum vegna gruns um árásar á mann í næturklúbbi aðfaranótt mánudagsins. Steven hefur nú verið ákærður ásamt tveimur öðrum fyrir líkamsárás og óspektir.

Einn maður var fluttur á sjúkrahús með áverka í andliti eftir fyrrnefnt atvik. Enn er ekki ljóst hvaða, ef einhvern, hlut Steven Gerrard átti að atvikinu og meiðslum mannsins. Steven Gerrard og félögum var sleppt úr haldi lögreglu nú í morgunsárið.

Í yfirlýsingu frá lögreglunni á Merseyside sagði:  ,,Lögreglan á Merseyside hefur ákært Steven Gerrard, 28 ára frá Formby, Sefton, John Doran, 29, og Ian Smith, 19 ára, báða frá Huyton, fyrir líkamsárás og óspektir eftir atvik sem gerðist í Bold Street í Southport snemma á mánudagsmorguninn 29. desember. Þessir þrír munu mæta til réttarhalda 23. janúar."

Talsmaðurinn sagði að Steven Gerrard og hinir mennirnir tveir hafi verið látnir lausir gegn tryggingu og aðrir þrír, 18 ára, 31 árs og 33 ára, sem einnig voru handteknir í tengslum við atvikið hafi einnig verið látnir lausir gegn tryggingu en þó með fyrirvara um að þeir verði teknir í frekari yfirheyrslur.

Ekki er vitað nákvæmlega hvað þetta þýðir fyrir Steven Gerrard en þó er líklegast að ef hann verði fundinn sekur að þá muni hann þurfa að greiða sekt og vinna einhverja samfélagsþjónustu.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan