Besti liðshópur Liverpool sem ég hef verið í!
Liverpool er í harðri baráttu um enska meistaratitilinn og hefur leitt deildina í meira en mánuð. Margir sparkspekingar telja að Liverpool sé ekki með nógu gott lið til að vinna deildina en liðið hefur verið í toppbaráttu alla leiktíðina og vonandi verður svo áfram.
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að liðshópurinn hjá Liverpool sé sá sterkasti sem hann hefur verið í. Hann hefur töluverðan samanburð því hann er búinn að vera í aðalliðshóp Liverpool í áratug.
,,Þetta er besti liðshópur sem ég hef nokkurn tímann spilað með hérna. Þegar ég lít í kringum mig í búningsherberginu þá sé ég að liðið, allt frá markverði til framherja, er skipað frábærum leikmönnum. Það bíða okkar erfiðar prófraunir og hindranir en við höfum trú á að við getum getum sigrast á erfiðleikum. Við eigum frábæra möguleika á að vinna deildina en til þess að gera það þá þurfum við að halda stöðugleika í leik okkar. Það er lykilatriði."
Næsta prófraun Liverpool verður á mánudagskvöldið þegar liðið fær Everton í heimsókn. Prófin gerast ekki mikið erfiðari og nú reynir á.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

