| Sf. Gutt

Steven heiðraður

Steven Gerrard hefur nú nýverið hlotnast tvær miklar viðurkenningar. Fyrst var hann gerður að Heiðursfélaga í Háskólanum í Liverpool og nú síðast hlaut útnefningu sem heiðursborgari í bæjarfélaginu Knowsley.

Steven var gerður að heiðursfélaga í Háskólanum í Liverpool í sumar við hátíðlega athöfn. Þetta er mikill heiður sem fáum hlotnast og þá er það mjög sjaldgæft að íþróttamaður verði fyrir valinu þegar heiðursnafnbótum er úthlutað.

Í síðustu viku var Steven svo gerður að heiðursborgara í bæjarfélaginu Knowsley en hann ólst upp í Huyton hverfinu sem þar er staðsett. Steven er aðeins fjórði maðurinn sem gerður er að heiðursfélaga í Knowsley.

“Þetta er mikill heiður fyrir mig og þá sérstaklega vegna þess að þessi heiður er veittur svo sjaldan. Mig langar til að færa bæjarstjórn Knowsley kærar þakkir. Ég er mjög stoltur af hverfinu og því samfélagi sem ég ólst upp í. Ég ólst upp í Huyton og lék mér á götum hverfisins. Uppeldið þar gerði mig að því sem ég er í dag. Þarna búa skyldmenni og vinir sem ég hef átt að frá því ég var strákur og dreymdi um að verða atvinnumaður í knattspyrnu."

Þessar viðurkenningar bætast í safn margra sem Steven hefur hlotið á ferli sínum.

Meðfylgjandi mynd var tekin af Steven og Alex, konu hans, þegar hann tók við viðurkenningu Háskólans í Liverpool í sumar. 

 






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan