| Sf. Gutt

Daniel Agger segist ánægður hjá Liverpool

Daninn snjalli Daniel Agger hefur átt erfitt uppdráttar á þessari leiktíð. Hann er nú búinn að ná sér eftir erfitt ristarbrot á síðustu leiktíð en hann hefur einfaldlega ekki komist í liðið vegna þess hversu vel þeir Jamie Carragher og Martin Skrtel hafa leikið í hjarta varnar Liverpool. Þeir tveir hafa leikið frábærlega saman og þeir Daniel og Sami Hyypia hafa að mestu mátt fylgjast með af varamannabekknum.

Daniel hefur aðeins leikið tvo leiki með Liverpool á leiktíðinni og fjölmiðlamenn hafa nú þegar hafið umfjöllun um að Daniel muni vilja yfirgefa Liverpool. Sá danski neitaði, nú í vikunni, öllum slíkum sögusögnum í viðtali við danska sjónvarpsstöð. Fyrst tjáði hann sig um orðróm um að hann hafi lent í rifrildi við Rafael Benítez í Belgíu eftir fyrsta leikinn á leiktíðinni við Standard Liege.

"Rafael var auðvitað ekki ánægður með leik okkar við Liege. Við spiluðum ekki vel en það er haugalýgi að við höfum rifist. Ég vona bara að ég sé ekki í liðinu af ástæðum sem tengjast bara knattspyrnu. Ég á ekki í neinum vandamálum hjá félaginu. Hann hefur bara sagt að ég sé ekki í liðinu vegna þess að liðið sé að spila mjög vel."

"Ég vil vera hérna áfram og berjast fyrir sæti mínu í liðinu. Ég er ekki ánægður með að ég sé ekki í liðinu en ég verð að sætta mig við það. Á hinn bóginn þá er ég mjög ánægður hjá Liverpool."

Daniel lék sinn annan leik á leiktíðinni í Deildarbikarnum gegn Crewe í síðustu viku og skoraði glæsilegt mark í 2:1 sigri Liverpool. Hann þótti leika frábærlega og Rafael Benítez hrósaði honum í hástert eftir leikinn. 

Það er vonandi að Daniel Agger fari ekki frá Liverpool því hann er án nokkurs vafa einn besti miðvörður á Englandi. Það myndi líka veikja liðshópinn hjá Liverpool mikið ef hann færi.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan