| HI

Á mín bestu ár eftir

Tæp tíu áru eru nú liðin síðan Steven Gerrard lék sinn fyrsta leik með Liverpool. Hann vonast til að bestu árin á ferlinum séu nú framundan, enda er hann enn aðeins 28 ára gamall.

Á ferli sínum með Liverpool hefur Steven Gerrard unnið Ensku bikarkeppnina, Deildarbikarinn, Evrópukeppni félagsliða, Evrópubikarinn, Skjöldinn og Stórbikar Evrópu. Hann vill bæta við fleiri titlum við áður en ferill hans er á enda.

"Ég vonast til að næstu þrjú til fjögur ár verði mjög góð fyrir mig. Ég vona að fólk, sem segir að maður sé á hátindi ferils síns 28 eða 29 ára gamall, hafi rétt fyrir sér. Ég hugsa oft um hvað ég hef náð fram í þessum leik. Ég hugsa um það á hverjum degi og vona bara að allar þessar minningar, titlarnir, mörkin, frábæru sigrarnir og góðu leikirnir séu ekki það síðasta. Ég vil meira af svona góðri reynslu og minningum. Það er það besta sem hefur komið fyrir mig í fótboltanum. Gleðin sem maður fær frá þessu öllu er ótrúleg. Þannig að á næstu fimm árum eða svo vil ég vinna fleiri titla og ég vil sérstaklega vinna ensku deildina."

Það er nokkuð sem Steven Gerrard hefur aldrei upplifað en hann hefur trú á að það breytist fyrr en síðar. "Mér finnst leikmannahópurinn mun sterkari núna en á síðasta tímabili. Það eru sannarlega mun fleiri sigurvegarar hér."

Um þennan áratug sem liðinn er frá fyrsta leiknum segir Steven. "Ég er að verða hræddur því árin líða hratt. Þessi tími hefur verið fljótur að líða og í nóvember verða tíu ár liðin síðan ég komst í aðalliðið. Það er sagt að tíminn líði hratt þegar maður skemmtir sér og það er satt. Núna vil ég nýta þann tíma sem ég á eftir til að spila fótbolta sem best."

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan