| Sf. Gutt

Robbie Fowler fékk samning við Blackburn Rovers

Robbie Fowler er kominn aftur í Úrvalsdeildina. Blackburn hefur gert þriggja mánaða samning við markakónginn og fær hann borgað fyrir hvern leik sem hann spilar.

Robbie lék með Cardiff City á síðustu leiktíð og var allt útlit á að hann myndi halda áfram að spila í Wales. En Paul Ince, fyrrum félagi hans hjá Liverpool, datt í hug að kanna hvort Robbie vildi koma til Blackburn. Robbie stóðst ekki mátið og hefur æft með Blackburn frá því í sumar. Paul vildi bíða og sjá hvort Robbie gæti komið sér í æfingu en hann hefur enn ekkert spilað á þessu ári vegna meiðsla sem hann varð fyrir seint á síðasta ári. En Paul var alveg tilbúinn að bíða og sjá hvort Robbie gæti komið sér í gang því hann hefur mikið álit á kappanum. "Hann er sóknarmaður í heimsklassa. Hann mun alltaf skora mörk hvar svo sem hann leikur ef hann er laus við meiðsli."

Robbie Fowler lék 369 leiki með Liverpool og skoraði 183 mörk. Hann er fimmti markahæsti leikmaður í sögu Liverpool.







TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan