| HI

Hyypia ekki í meistaradeildarhópnum

Sami Hyypia er ekki í leikmannahópi Liverpool í meistaradeildinni sem tilkynntur var til UEFA. Ástæðan er aðallega nýjar reglur UEFA um hlutfall uppaldra leikmanna í hópnum en samkvæmt þeim verða að minnsta kosti átta af 25 leikmönnum í hópnum að vera aldir upp hjá félaginu. Þetta þýðir að Hyypia leikur ekkert með Liverpool í riðlakeppni meistaradeildarinnar en eftir hana er hægt að breyta þessum hóp.

Hyypia var að vonum ekki sáttur við þetta. "Ákvörðun stjórans um að hafa mig ekki í hópnum er mér mikil vonbrigði. Ég skil að hluti af ástæðunni er reglur UEFA en þrátt fyrir það komu fregnirnar mér mjög á óvart og voru mikið áfall. En tímasetning félagsins var "fullkomin" fyrir þetta; þeir vildu ekki að ég færi eitthvað annað svo að þess vegna var mér sagt frá þessu rétt eftur að búið var að loka félagaskiptaglugganum.

Félagið sagði opinberlega að það hefðu borist tilboð í mig sem var hafnað. Svo kannski eru það merki um að ég hef ennþá hlutverki að gegna í vetur. Ég veit ekki hvort ég hefði viljað fara ef ég hefði fengið þessar fréttir þegar glugginn var ennþá opinn."

Samkvæmt reglunum UEFA þurfa fjórir leikmenn í hópnum að hafa alist upp í unglingastarfi ensks félags og aðrir fjórir að hafa alist upp í unglingastarfi viðkomandi félagi. Leikmenn frá unglingastarfi Liverpool sem eru í hópnum eru Steven Gerrard, Jamie Carragher, Jay Spearing og Stephen Darby. Úr öðrum enskum félögum koma svo Robbie Keane, Jermaine Pennant, Steven Irwin og Martin Kelly.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan