L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Sami Hyypiä
Fæðingardagur:
07.10.1973
Fæðingarstaður:
Porvoo, Finnlandi
Fyrri félög:
Mypa 47, Willem II
Kaupverð:
£2.500.000
Byrjaði / keyptur:
19.05.1999
Upplýsingar á LFCHistory.net:
Skoða
Fjöldi aðdáenda Liverpool eru þegar farnir að setja Finnann Sami Hyypia á sama stall og goðsagnarkennda varnarmenn fyrrum sigursælla liða Liverpool. Bill Shankly hvatti blaðamenn til þess að ganga í kringum Ron Yeats og virða fyrir sér þennan risavaxna mann sem átti eftir að vera einn burðarása meistaraliða Shankly. Síðan kom hinn mikli harðjaxl Tommy Smith, sem tæklaði ljósastaura ef svo bar undir og nuddaði joði í opin sár sín rétt til þess að trekkja sig áfram. Emlyn Hughes fylgdi í kjölfarið, hinn dæmigerði innfæddi Liverpoolbúi og skein leikgleði hans í gegn og hvatti aðra til dáða. Phil Thompson kom fram á sjónarsviðið og síðan miðvarðarparið Mark Lawrenson og Alan Hansen sem fá lið sáu færi á. Síðan hefur úrvalið verið af skornum skammti.
Anfieldvirkið "Fortress Anfield" er nú orðið að veruleika aftur og Finninn á stóran þátt í því. Það þykir með hreinum ólíkindum að Hyypia fékk ekki eitt einasta spjald á sig tímabilið 2000-2001 þrátt fyrir að hafa leikið 63 leiki. Hann var kosinn leikmaður tímabilsins tvö ár í röð af Liverpool-klúbbnum á Íslandi. "Kletturinn" er einstaklega yfirvegaður leikmaður og skilar sínu hlutverki nánast óaðfinnanlega. Sami Hyypia er búinn að skapa sér nafn sem einn besti varnarmaður ensku úrvalsdeildarinnar.
Sami Hyypia lék stórt hlutverk í að gera Liverpool að Evrópumeisturum tímabilið 2004-2005 þar sem hann skoraði til að mynda mikilvægt mark gegn Juventus í átta liða úrslitum keppninnar.
Síðasta leiktíð, 2008-2009, var loka leiktíð hans hjá Liverpool en hann gekk til liðs við Bayer Leverkusen í Þýskalandi eftir að samningur hans við Liverpool rann út eftir núliðið tímabil. Síðasti leikur hans í treyju Liverpool var þegar hann kom inn á sem skiptimaður þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af lokaleik tímabilsins en stuðningsmenn Liverpool á Anfield klöppuðu honum lof í lófa og sungu nafn hans út leiktímann og var þetta tilfinnungaþrungin kveðjustund fyrir bæði Sami Hyypia og stuðningsmenn Liverpool. Hann lék 464 leiki fyrir hönd Liverpool á tíu árum sínum hjá félaginu.
Þrátt fyrir að þessi mikla goðsögn hafi yfirgefið félagið til að fá meiri spilatíma út feril sinn þá er hann ávallt velkominn aftur á Anfield og hefur Rafa Benítez boðið honum að snúa aftur til félagsins þegar hann telur sig tilbúinn og gerast þjálfari hjá liðinu, Sami Hyypia tekur vel í þá strengi og dreymir honum um að snúa aftur til Liverpool áður en langt um líður.
Tölfræðin fyrir Sami Hyypiä
Tímabil
Deild
Bikar
Deildarbikar
Evrópa
Annað
Alls
1999/2000
38 - 2
2 - 0
2 - 0
0 - 0
0 - 0
42 - 2
2000/2001
35 - 3
6 - 0
6 - 1
11 - 0
0 - 0
58 - 4
2001/2002
37 - 3
2 - 0
1 - 0
15 - 2
2 - 0
57 - 5
2002/2003
36 - 3
3 - 0
4 - 0
12 - 2
1 - 0
56 - 5
2003/2004
38 - 4
4 - 0
1 - 0
8 - 1
0 - 0
51 - 5
2004/2005
32 - 2
1 - 0
1 - 0
15 - 1
0 - 0
49 - 3
2005/2006
36 - 1
6 - 1
1 - 0
13 - 0
3 - 0
59 - 2
2006/2007
23 - 2
0 - 0
1 - 1
5 - 0
0 - 0
29 - 3
2007/2008
27 - 1
4 - 1
0 - 0
13 - 2
0 - 0
44 - 4
2008/2009
16 - 1
1 - 0
2 - 1
0 - 0
0 - 0
19 - 2
Samtals
318 - 22
29 - 2
19 - 3
92 - 8
6 - 0
464 - 35
Fréttir, greinar og annað um Sami Hyypiä
Fréttir
01.09.2011 18:00 | Sf. Gutt
Philipp Degen yfirgefur Liverpool
29.08.2011 22:00 | Grétar Magnússon
Emiliano ánægður með nýja félagið
04.08.2011 13:51 | Grétar Magnússon
Thomas Ince til Blackpool
15.07.2011 16:07 | Grétar Magnússon
Samið við Alexander Doni
06.07.2011 13:59 | Grétar Magnússon
Samið um kaupverð á Charlie Adam
07.05.2011 04:00 | Sf. Gutt
Skilaboð Sami til okkar!
02.05.2011 20:00 | Sf. Gutt
Sami Hyypia leggur skó á hillu!
31.08.2010 22:00 | Sf. Gutt
Samið við tvo ungliða
25.07.2010 04:00 | Sf. Gutt
Snýr Sami heim?
27.01.2010 21:11 | Sf. Gutt
Ian Rush hefur orðið
Í nærmynd
03.06.2009
Finnski meistarinn Sami Hyypia hefur yfirgefi ...
09.04.2008
Stuðningsmenn Liverpool hafa getað glaðst yfi ...
10.05.2007
Sami Hyypia náði þeim merka áfanga á dögunum ...
14.03.2005
Sami Hyypia lék á dögunum þrjúhundraðasta lei ...
06.02.2004
Sami Hyypia hefur sjaldan leikið betur fyrir ...
04.04.2002
Sami Hyypia var hetja Liverpool á Anfield geg ...
23.04.2001
Við vissum að Sami Hyypia væri frábær varnarm ...
Aðrar greinar
Sami Hyypia
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Tímabilið 2010 / 2011
Leikmannaprófíll
Leikir & Úrslit
Leikmenn
Tölfræðin
Úrvalsdeildin
Leikjahornið
Næstu leikir
Úrslit
Leikur
Úrslit
LFC
- Brighton
19.feb. 16:30
Cardiff -
LFC
26.feb. 16:00
LFC
- Arsenal
03.mar. 12:45
Leikur
Úrslit
Man Utd. -
LFC
2 - 1
LFC
- Tottenham
0 - 0
Wolves -
LFC
0 - 3
Vefkönnun
Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í janúar?
Daniel Agger
Craig Bellamy
Andy Carroll
Steven Gerrard
Martin Skrtel
Einhver annar
Skoða eldri kannanir
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir