| HI
Steven Gerrard segir að leikur hans hafi liðið fyrir fjölhæfni sína. Hann hafi of oft verið settur á kantinn af því enginn annar gat spilað þar. Þetta á sérstaklega við um enska landsliðið, en þar hefur hann ótrúlega sjaldan spilað í sinni bestu stöðu, á miðri miðjunni.
"Ég hef liðið fyrir það að geta leikið vel í öðrum stöðum. Aðrir leikmenn flakka ekki svona mikið á milli því að þeir geta það hreinlega ekki. Ég get ekki spilað á vinstri eða hægri kantinum og verið eins og Kaka eða Robinho, ég bara mæti á staðinn, gef allt mitt í leikinn og á þokkalegan leik. Ég mun leggja hart að mér, vinna mína varnarvinnu og hjálpa liðinu. Þess vegna gera stjórar þetta, en það hefur áhrif á mig.
Leikur minn líður fyrir það að ég sé að skipta um stöðu á vellinum. Ég er miðjumaður og í stórum leikjum vil ég spila á miðjunni og sýna að ég er einn þeirra bestu í þeirri stöðu.
Ég hef spilað í minni bestu stöðu með enska landsliðinu í fimm leikjum af 68. Hvað get ég gert? Ég fer á æfingar með enska landsliðinu og reyni að sanna mig á hverjum degi. Allir þeir sem hafa þjálfað enska landsliðið vita hvar ég vil spila, en þeir ákveða liðsuppstillinguna og ég leik þar sem mér er sagt að leika."
TIL BAKA
Gerrard: Ég líð fyrir fjölhæfni
Steven Gerrard segir að leikur hans hafi liðið fyrir fjölhæfni sína. Hann hafi of oft verið settur á kantinn af því enginn annar gat spilað þar. Þetta á sérstaklega við um enska landsliðið, en þar hefur hann ótrúlega sjaldan spilað í sinni bestu stöðu, á miðri miðjunni."Ég hef liðið fyrir það að geta leikið vel í öðrum stöðum. Aðrir leikmenn flakka ekki svona mikið á milli því að þeir geta það hreinlega ekki. Ég get ekki spilað á vinstri eða hægri kantinum og verið eins og Kaka eða Robinho, ég bara mæti á staðinn, gef allt mitt í leikinn og á þokkalegan leik. Ég mun leggja hart að mér, vinna mína varnarvinnu og hjálpa liðinu. Þess vegna gera stjórar þetta, en það hefur áhrif á mig.
Leikur minn líður fyrir það að ég sé að skipta um stöðu á vellinum. Ég er miðjumaður og í stórum leikjum vil ég spila á miðjunni og sýna að ég er einn þeirra bestu í þeirri stöðu.
Ég hef spilað í minni bestu stöðu með enska landsliðinu í fimm leikjum af 68. Hvað get ég gert? Ég fer á æfingar með enska landsliðinu og reyni að sanna mig á hverjum degi. Allir þeir sem hafa þjálfað enska landsliðið vita hvar ég vil spila, en þeir ákveða liðsuppstillinguna og ég leik þar sem mér er sagt að leika."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

