| Ólafur Haukur Tómasson

Riera: Ekki dæma mig frá tíma mínum hjá City

Nýjasti leikmaður Liverpool, Albert Riera, var kynntur fyrir stuðningsmönnum félagsins og blaðamönnum í gær. Hann telur sig vera orðinn betri leikmann á þessum þremur árum sem hann hefur verið á Spáni eftir að hann eyddi einu ári sem lánsmaður hjá Manchester City, og hann getur ekki beðið eftir að hafa einhver áhrif á liðið.

"Þetta var öðruvísi aðstaða, ég fór til Manchester City í janúar og við vorum að berjast um sæti um miðja deild. Á þeim tíma var ég 22 ára gamall en nú er ég þremur árum reyndari og það er mikilvægt í fótbolta. Á þessum tíma hef ég spilað í úrslitum Evrópukeppni félagsliða og spilað fyrir landsliðið.

Ég er betur tilbúinn í að spila fyrir félag eins og Liverpool, og ég þekki einnig til Úrvalsdeildarinnar. Ég held að ég sé betri núna. Ég hef náð miklum framförum og ég vil halda áfram að ná framförum hér." sagði Riera.

Riera var mjög eftirsóttur í sumar og voru mörg félög sem að lögðu fram tilboð í hann, og þar á meðal bauð Everton hærra tilboð en Liverpool í hann, en Riera var staðráðinn í að hann vildi ganga til liðs við Liverpool og hlustaði ekki einu sinni á hin tilboðin.

"Espanyol fékk önnu tilboð, ekki bara frá Everton, en ég sagði þeim að ég vildi fara til Liverpool. Mikilvægasti hluturinn fyrir alla leikmenn er að mæta til leiks og reyna að vinna alla leikina. Við viljum reyna að vinna og berjast um alla titlana, Meistaradeildina, Úrvalsdeildina og hina tvo bikarana. Þetta eru hlutirnir sem að ég vil."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan