L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Albert Riera
Fæðingardagur:
15.04.1982
Fæðingarstaður:
Manacor, Spáni
Fyrri félög:
RCD Mallorca, Girondins Bordeaux, RCD Espanyol, Manchester City á láni
Kaupverð:
£9.000.000
Byrjaði / keyptur:
01.09.2008
Upplýsingar á LFCHistory.net:
Skoða
Albert Riera var keyptur síðasta dag félagaskiptagluggans árið 2008. Hann er spennandi leikmaður sem hefur gaman að því að taka varnarmenn á og hann á góðar sendingar fyrir markið. Riera var vinsæll leikmaður hjá Espanyol og stuðningsmenn liðsins sáu mikið á eftir honum.
Riera hafði reynslu af því að spila í Úrvalsdeildinni en hann var áður á láni hjá Manchester City tímabilið 2005-2006. Hann kom inná í leik gegn Liverpool á Anfield og spilaði siðustu 12 mínúturnar í 1-0 sigri Liverpool þann 26. febrúar 2006.
Hann spilaði 15 leiki undir stjórn Stuart Pearce og skoraði eitt mark gegn Newcastle United.
Riera er fæddur á eyjunni Mallorca, í bæ sem heitir Manacor en það er einmitt fæðingarstaður tennisstjörnunnar Rafal Nadal.
Riera hefur, líkt og Steven Gerrard, skorað í úrslitaleik UEFA Cup. Hinsvegar var hann ekki í sigurliðinu líkt og Stevie en Espanyol töpuðu í vítaspyrnukeppni gegn Sevilla árið 2007 en leikurinn endaði 2-2 eftir framlengingu.
Hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í 3-1 sigri Spánverja á frændum okkar Dönum í undankeppni Evrópumótsins 13. október 2007 og hefur hann spilað tólf landsleiki til þessa og skorað þrjú mörk.
Frumraun hans hjá Liverpool var í sigurleik gegn Manchester United og frumraun hans hjá Manchester City á sínum tíma var einnig í sigurleik gegn Manchester United, því má líta þannig á að lið verði sigurstranglegri gegn Manchester United með Riera í liðinu.
Hans fyrsta mark kom í dramatískum sigri á Wigan Athletic þegar hann skoraði með bylmingsskoti með öfugum fæti í mark mótherjana.
Á síðustu leiktíð 2008-2009, lék hann 40 leiki fyrir Liverpool og skoraði fimm mörk, loksins virðist sem svo að Liverpool sé komið með alvöru vinstri kantmann í sitt lið.
Tölfræðin fyrir Albert Riera
Tímabil
Deild
Bikar
Deildarbikar
Evrópa
Annað
Alls
2008/2009
28 - 3
3 - 1
0 - 0
9 - 1
0 - 0
40 - 5
2009/2010
12 - 0
0 - 0
1 - 0
3 - 0
0 - 0
16 - 0
Samtals
40 - 3
3 - 1
1 - 0
12 - 1
0 - 0
56 - 5
Fréttir, greinar og annað um Albert Riera
Fréttir
20.08.2010 02:00 | Sf. Gutt
Krisztian Nemeth seldur
26.07.2010 21:14 | Ólafur Haukur Tómasson
Kveðja frá Albert Riera
23.07.2010 20:56 | Sf. Gutt
Albert Riera seldur
21.07.2010 20:13 | Ólafur Haukur Tómasson
Liverpool í viðræðum um sölu á Riera
26.05.2010 06:00 | Sf. Gutt
Ykkar skoðun
20.05.2010 02:03 | Heimir Eyvindarson
Riera vill burt
24.03.2010 22:38 | Sf. Gutt
Albert Riera úti í kuldanum!
20.11.2009 14:03 | Grétar Magnússon
Galdra meðferð !
10.11.2009 10:44 | HI
Riera og Benayoun meiddir
03.08.2009 20:47 | Ólafur Haukur Tómasson
Riera telur formið mikilvægara en úrslit
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Tímabilið 2010 / 2011
Leikmannaprófíll
Leikir & Úrslit
Leikmenn
Tölfræðin
Úrvalsdeildin
Leikjahornið
Næstu leikir
Úrslit
Leikur
Úrslit
Man Utd. -
LFC
11.feb. 12:45
LFC
- Brighton
19.feb. 16:30
Cardiff -
LFC
26.feb. 16:00
Leikur
Úrslit
LFC
- Tottenham
0 - 0
Wolves -
LFC
0 - 3
LFC
- Man Utd.
2 - 1
Vefkönnun
Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í janúar?
Daniel Agger
Craig Bellamy
Andy Carroll
Steven Gerrard
Martin Skrtel
Einhver annar
Skoða eldri kannanir
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir