| Sf. Gutt

Allt það helsta um Albert Riera

Albert Riera er nýjasti liðsmaður Liverpool. Hér er allt það helsta um þennan spænska útherja.

  • Albert Riera Ortega fæddist þann 15. apríl árið 1982.
  • Albert er frá bænum Manacor á eyjunni Mæjorku. Í þeim bæ er tenniskappinn Rafael Nadal fæddur.
  • Albert er kallaður "Flossy" af vinum sínum.
  • Albert hóf feril sinn með Mallorca. Hann varð spænskur bikarmeistari með liðinu 2003. Sama ár fór hann til Frakklands þar sem hann samdi við Bordeaux.
  • Hann sneri svo aftur heim til Spánar árið 2005 og gekk til liðs við Espanyol sem er litla liðið í Barcelona.
  • Albert hefur áður leikið á Englandi en hann lék um tíma lánsmaður hjá Manchester City. Hann lék 15 leiki og skoraði eitt mark á leiktíðinni 2005/06.
  • Fyrsti leikur hans með Manchester City var gegn Manchester United. City vann 3:1 á Manchester leikvanginum. Næsti leikur Liverpool er við Manchester United á heimavelli!
  • Albert hefur einu sinni áður leikið á Anfield Road. Hann var í liði Manchester City sem tapaði 1:0 fyrir Liverpool. Harry Kewell skoraði sigurmark Liverpool. Nú er Albert kominn til að leika á vinstri kantinum eins og Harry!
  • Albert komst í úrslitaleikinn í Evrópukeppni félagsliða með Espanyol vorið 2007. Liðið lék til úrslita við Sevilla á Hampden Park í Glasgow. Liðin stóðu jöfn 2:2 eftir framlengdan leik og skoraði Albert annað mark síns liðs. Sevilla vann í vítaspyrnukeppni og varði titilinn frá því árið áður. 
  • Albert hefur leikið fimm landsleiki fyrir Spánverja og skorað eitt mark. 
  • Albert mun klæðast treyju númer 11 hjá Liverpool.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan