| Grétar Magnússon

Albert Riera orðinn leikmaður Liverpool

Albert Riera hefur verið keyptur frá spænska félaginu Espanyol og hefur hann skrifað undir fjögurra ára samning við Liverpool.  Nokkur Úrvalsdeildarlið höfðu sýnt Riera áhuga en Liverpool varð fyrir valinu.

Rafa Benítez er hæstánægður með kaupin á Riera og segist hann hafa fulla trú á því að hann þurfi ekki langan tíma til að aðlagast enska boltanum.

,,Riera hefur þau gæði sem við erum að leita að," sagði Benítez.  ,,Hann er örvfættur sem spilar venjulega á vinstri kanti, hann er góður skallamaður, sterkur, kraftmikill og á góðar sendingar fyrir markið.  Hann er sá leikmaður sem við höfum verið að tala um.  Hann getur tekið menn á og átt góðar sendingar inn í teig fyrir sóknarmennina."

,,Við höfum vitað af honum í langan tíma, síðan hann var hjá Mallorca og svo þegar hann spilaði með Bordeaux, Manchester City og Espanyol.  Hann talar góða ensku og auðvitað þekkir hann Úrvalsdeildina, sem er stór bónus.  Venjulega þurfa erlendir leikmenn tíma þegar þeir fara til nýs lands, en Riera þekkir nú þegar deildina og þá tegund fótbolta sem er spilaður hér."

,,Hann var með tilboð frá fleiri enskum félögum en sagði nei við þau vegna þess að hann vildi koma og spila fyrir okkur.  Það hefur mikið að segja fyrir mér því það sýnir þá staðfestu sem hann hefur og þann vilja til að spila fyrir Liverpool.

Riera verður í treyju númer 11 hjá félaginu.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan