Robbie Fowler æfir með Blackburn Rovers
Robbie Fowler hefur gengið til liðs við Blackburn Rovers til reynslu. Hann var búinn með samning sinn við Cardiff City sem var til eins árs. Þar hafði honum verið boðinn nýr samningur sem fól það í sér að hann fengi borgað fyrir hvern og einn leik sem hann spilaði. Allt leit út fyrir að Robbie tæki því tilboði en hann hætti við á síðustu stundu. Ástæðan var sú að Paul Ince, fyrrum félagi hans hjá Liverpool, bauð honum að æfa með Blackburn Rovers með það í huga að bjóða honum samning ef vel gengi. Robbie lét ekki happ úr hendi sleppa og tók boðinu. Kappinn er tilbúinn að láta á það reyna hvort hann kemst að hjá Blackburn.
"Ég hefði getað tekið tilboði Cardiff því það er ekkert víst að Blackburn bjóði mér samning en þegar hér er komið við sögu á ferli mínum þá gat ég ekki sleppt þessu tækifæri. Ég nýt þess enn að spila fótbolta og það skiptir engu máli hvað maður er gamall því maður vill alltaf spila í Úrvalsdeildinni og ég held í alvöru að ég geti það. Ég átti við meiðsli að stríða hjá Cardiff á síðustu leiktíð en ég skoraði mörk þegar ég var að spila. Ég er ekki tilbúinn að hætta að spila því mér finnst að ég geti enn lagt eitthvað af mörkum."
Robbie Fowler gekk til liðs við Cardiff City fyrir einu ári eftir að hann yfirgaf Liverpool eftir heimkomu sína þangað. Honum gekk vel framan af leiktíð en svo meiddist hann á mjöðm og hann lék ekkert eftir áramót. Hann var orðinn leikfær undir vor en var ekki valinn til að spila í úrslitaleik F.A. bikarsins þegar Cardiff tapaði 1:0 fyrir Portsmouth. Robbie lék 16 leiki með Cardiff og skoraði sex mörk.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

