Steven verður fyrirliði á morgun
Steven Gerrard verður fyrirliði enska landsliðsins í æfingaleik gegn Sviss á Wembley annað kvöld.
Þetta er fyrsti leikur landsliðsins síðan Fabio Capello tók við sem landsliðsþjálfari. Gerrard var varafyrirliði fyrir John Terry meðan Steve McClaren var með liðið. Terry er ekki í liðinu að þessu sinni vegna meiðsla.
Um þessa ákvörðun sagði Capello. "Ég gerði Gerrard að fyrirliða því að ég tel að hann sé mikilvægur leikmaður fyrir England, samkvæmt mínum áætlunum. Gerrard er mikilvægur því að hann getur komið hlutum til skila, stjórnað liði og hvatt leikmenn áfram. En ég mun ekki útnefnda fyrirliða til frambúðar fyrr en fyrir leikinn gegn Andorra í september."
Þetta verður 64. landsleikurinn sem Steven Gerrard spilar og sá sjöundi sem hann leiðir liðið sem fyrirliði.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

