| HI

Steven Gerrard frá í tíu daga?

Búist er við að Steven Gerrard verði frá æfingum og keppni í tíu daga vegna tábrotsins sem hann varð fyrir gegn Toulouse. Það myndi þýða að hann gæti ekki leikið gegn Sunderland um næstu helgi. Þetta kemur fram í Liverpool Echo í dag.

Steven Gerrard var sprautaður niður til að hann gæti leikið gegn Chelsea á sunnudag en hann lék ekki með Englendingum gegn Þjóðverjum í gær. Rafael Benítez vill hafa hann í sínu besta formi næstu mánuði og er búist við því að hann þurfi tíu daga hvíld til að jafna sig á þessum meiðslum. Ef þetta reynist rétt mun hann ekki geta leikið gegn Sunderland á laugardag auk þess sem hann yrði tæpur fyrir seinni leikinn gegn Toulouse í forkeppni meistaradeildarinnar á þriðjudag.

Meta á meiðsli Gerrard þegar Mark Waller snýr aftur frá störfum sínum með enska landsliðinu.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan