| AB

Ólíklegt að Tevez komi til Liverpool

Javier Mascherano býst ekki við því að Carlos Tevez feti í fótspor hans og fari frá West Ham til Liverpool. Meginlandið sé líklegri ákvörðunarstaður:

"Það væri frábært fyrir mig og Liverpool að fá Tevez. Hann er frábær leikmaður og Liverpool er frábært félag og auðvitað væri hann velkominn hingað. Mér skilst á því sem ég hef heyrt að Liverpool muni eiga í erfiðleikum með að jafna þau tilboð fjárhagslega sem honum hafa víst borist. Kannski vill hann leika í öðru landi."

 

 

 

 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan