Heiðursgestir Liverpool á Wembley í dag
Liverpool Football Club á nokkra fulltrúa á Wembley í dag. Því miður kom það ekki í hlut Liverpool að leika til úrslita um F.A. bikarinn í dag á hinum nýja Wembley. Liverpool á þó fimm fulltrúa í mikilli hátíð sem fer fram fyrir leikinn. Fyrir úrslitaleik Chelsea og Manchester United um F.A. bikarinn verður margt gert til hátíðarbrigða í tilefni þess að nýr Wembley leikvangur er nú vettvangur úrslitaleikja í ensku knattspyrnunni á nýjan leik. Fjöldi leikmanna, sem hafa orðið bikarmeistarar á Wembley frá árinu 1957 eru boðnir sem heiðursgestir til Wembley. Hér að neðan eru heiðursgestir Liverpool.

Ian St John: 1965, Skoraði sigurmark Liverpool þegar liðið vann F.A. bikarinn í fyrsta sinn. Liverpool vann Leeds United 2:1 í framlengdum leik. Roger Hunt skoraði fyrra mark Liverpool.

Ray Clemence: 1974. Lék í marki Liverpool þegar liðið vann Newcastle United 3:0. Kevin Keegan skoraði tvö mörk og Steve Heighway eitt.

Ian Rush: 1986. Skoraði tvö mörk þegar Liverpool vann Everton 3:1 og vann um leið tvöfaldan sigur í deild og bikar. Craig Johnston skoraði eitt mark. Enginn hefur skorað fleiri mörk í úrslitaleikjum F.A. bikarsins á Wembley. Ian skoraði fimm mörk.

John Barnes: 1989. Hann var í sigurliði Liverpool sem vann 3:2 sigur á Everton eftir framlengdan leik. Ian Rush skoraði tvívegis og John Aldrigde eitt.

Michael Thomas: 1992. Skoraði fyrra mark Liverpool þegar vann Sunderland 2:0. Ian Rush skoraði seinna markið. Liverpool hélt upp á aldarafmæli félagsins þetta ár og því var vel við hæfi að vinna F.A. bikarinn.
Fyrir utan þessi fimm skipti þá hefur Liverpool unnið F.A. bikarinn tvívegis í viðbót. Þeir sigrar komu í Cardiff 2001 og 2006!

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

