Niðurtalning - 2. kapítuli
+ Þetta er þrítugasta og fjórða leiktíð Liverpool á Evrópumótunum. Þar af er liðið að spila seytjándu leiktíðina meðal sterkustu liða Evrópu.
+ Á þessum þrjátíu og fjórum leiktíðum hefur Liverpool unnið ellefu Evróputitla.
+ Sigursælasti leikmaður Liverpool í Evrópukeppnum er Phil Neal. Hann vann Evrópubikarinn fjórum sinnum (1977, 1978, 1981 og 1984), Evrópukeppni félagsliða einu sinni (1976) og Stórbikar Evrópu einu sinni (1977).
+ Phil hefur því tekið þátt í sex af níu Evróputitilsigrum Liverpool.
+ Phil Neal hefur spilað í fjórum af fimm sigurliðum Liverpool í Evrópubikarnum hingað til.
+ Phil Neal er líka markahæsti leikmaður Liverpool í úrslitaleikjum Evrópubikarsins. Hann skoraði í úrslitaleikjunum 1977 og 1984.
+ Fjórir fyrirliðar Liverpool hafa tekið við Evrópubikarnum. Emlyn Hughes veitti honum viðtöku árin 1977 og 1978. Phil Thompson var fyrirliði 1981 og Graeme Souness leiddi liðið 1984. Steven Gerrard tók svo við Evrópubikarnum til eignar 2005.
+ Þrír leikjahæstu leikmenn Liverpool í Evrópukeppni eru: Jamie Carragher 90 leikir, Ian Callaghan 89 og Tommy Smith 85.
+ Leikjahæstu menn af núverandi leikmönnum Liverpool eru þeir: Jamie Carragher 90, Sami Hyypia 81, Steven Gerrard 77 og John Arne Riise 68.
+ Þrír markahæstu leikmenn Liverpool í Evrópukeppni eru: Michael Owen 22 mark, Ian Rush 20 mörk og Steven Gerrard 19 mörk.
+ Markahæstu leikmenn Liverpool í Evrópukeppni meistaraliða: Steven Gerrard 15, Ian Rush 14, Terry McDermott 12. Sanz Luis Garcia 11. Þeir Kenny Dalglish, Roger Hunt og Phil Neal hafa svo skorað tíu mörk hver.
+ Markahæstu menn af núverandi leikmönnum Liverpool eru: Steven Gerrard 19, Robbie Fowler 14 og Sanz Luis Garcia 11.
+ Peter Crouch hefur skorað sjö Evrópumörk á þessari leiktíð.
+ Dean Saunders skoraði níu Evrópumörk á sömu leiktíðinni 1991/92 og hefur enginn skorað fleiri mörk í Evrópukeppni á einni leiktíð fyrir Liverpool.
+ Leikmenn Liverpool hafa fimmtán sinnum skorað þrennu í Evrópuleik.
+ Stærsti sigur Liverpool í Evrópukeppni kom þann 17. september 1974 í Evrópukeppni bikarhafa. Liverpool vann þá Stromsgodset frá Noregi 11:0 (Alec Lindsay víti, Phil Boersma 2, Phil Thompson 2, Steve Heighway, Peter Cormack, Emlyn Hughes, Tommy Smith, Ian Callaghan og Ray Kennedy). Aðeins þeir Ray Clemence og Brian Hall skoruðu ekki. Aldrei hafa fleiri leikmenn Liverpool skorað í sama leiknum. Liverpool vann seinni leikinn 1:0 með marki frá Ray Kennedy.
+ Stærsti sigur samtals kom í Evrópukeppni félagsliða leiktíðina 1969/70. Liverpool vann þá írska liðið Dundalk 10:0 á Anfield Road og 4:0 á Írlandi. Samtals 14:0.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

