Niðurtalningin er hafin - 1. kapítuli
Liverpool leikur nú til úrslita um Evrópubikarinn í annað sinn á þremur árum og á möguleika á að vinna hann í sjötta sinn. Liverpool á glæsta sögu í Evrópukeppninni og reyndar eiga fá lið í Evrópu glæsilegri sögu á þeim vettvangi. Það er okkur stuðningsmönnum Liverpool mikið gleðiefni að sjá liðið okkar í úrslitleik um Evrópubikarinn. Á miðvikudaginn mætir Liverpool AC Milan frá Ítalíu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Olympíuleikvanginum í Aþenu. Það er því mikil spenna í loftinu í Liverpool og hjá stuðningsmönnum liðsins okkar hvar sem þeir eru til sjós og lands. Til að magna spennuna, hefst í dag, niðurtalning fyrir úrslitaleikinn á liverpool.is. Í niðurtalningunni verður margt til fróðleiks um keppnina og árangur Liverpool í henni svo eitthvað sé nefnt.
+ Evrópukeppni meistaraliða, eins og keppnin hét fyrst, fór fyrst fram leiktíðina 1955/56. Real Madrid varð fyrst liða til að vinna keppnina. Reyndar vann liðið keppnina fyrstu fimm árin!
+ Leiktíðina 1992/93 var keppnisfyrirkomulagi breytt og kallaðist keppnin þá Meistaradeildin. Það er þó enn keppt um sama bikar og áður var keppt um.
+ Leikurinn á miðvikudaginn er 52. úrslitaleikurinn um Evrópubikarinn.
+ Real Madrid hefur oftast unnið keppnina eða níu sinnum. AC Milan hefur sex sinnum unnið. Liverpool hefur fimm sinnum unnið Evrópubikarinn. Ajax og Bayern Munchen koma svo næst með fjóra sigra. Barcelona, Benfica, Inter Milan, Juventus, Manchester United, Nottingham Forest og Porto hafa unnið keppnina tvívegis. Aston Villa, Borussia Dortmund, Celtic, Feyenord, Hamburger SV, Marseille, PSV Eindhoven, Red Star Belgrad og Steaua Búkarest eiga einn sigur á afrekaskrá sinni.
+ Liverpool er sigursælast allra enskra liða á Evrópumótunum. Alls hefur Liverpool unnið ellefu Evróputitla.
+ Liverpool hefur unnið Evrópubikarinn fimm sinnum 1977, 1978, 1981, 1984 og 2005.
+ Liverpool hefur unnið Evrópukeppni félagsliða þrívegis 1973, 1976 og 2001.
+ Liverpool hefur unnið Stórbikar Evrópu þrívegis 1977, 2001 og 2005.
+ Fyrsti leikur Liverpool í Evrópukeppni var háður 17. ágúst 1964 á Laugardalsvellinum. Liverpool vann þá K.R. 5:0 í Evrópukeppni meistaraliða. Gordon Wallace 2, Roger Hunt 2 og Phil Chisnall skoruðu. Gordon skoraði fyrsta Evrópumark Liverpool eftir 180 sekúndna leik. Á Laugardalsvöllinn mættu 10.268 áhorfendur. 32.597 áhorfendur sáu Liverpool vinna seinni leikinn 6:1 á Anfield Road. Gerry Byrne, Ian St. John 2, Roger Hunt, Bobby Graham og Willie Stevenson skoruðu. Gunnar Felixsson varð fyrstur til að skora hjá Liverpool í Evrópuleik.
+ Frá leiktíðinni 1964/65 lék Liverpool tuttugu leiktíðir í röð í Evrópukeppni til 1984/85. Eftir harmleikinn á Heysel leikvanginum í Brussel var Liverpool dæmt frá þátttöku í Evrópukeppnum í sex sparktíðir.
+ Liverpool er núna að leika á sinni þrítugustu og fjórðu leiktíð í Evrópukeppnum ef rétt hefur verið talið.
+ Leikurinn gegn AC Milan verður ellefti úrslitaleikur Liverpool á Evrópumótunum.
+ Liverpool vann Evrópubikarinn til eignar í Istanbúl. Reglur Knattspyrnusambands Evrópu kveða á um að vinni sama félag bikarinn fimm sinnum eða þrjú ár í röð þá eignist það hann. Ný eftirlíking af bikarnum er þá búin til og sett í umferð. Aðeins Liverpool, AC Milan og Real Madrid hafa unnið bikarinn til eignar fram til þessa.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

