| Sf. Gutt

Það styttist í úrslitaleikinn!

Það styttist í úrslitaleikinn um Evrópubikarinn. Á miðvikudagskvöldið ganga leikmenn Liverpool og AC Milan til leiks á Olymípuleikvanginum í Aþenu. Liverpool fær þar tækifæri til að vinna Evrópubikarinn í sjötta sinn og í annað sinn á þremur árum!!!!!!

Spennan eykst hjá stuðningsmönnum Liverpool með degi hverjum. Liverpool.is mun ekki láta sitt eftir liggja og hér verður fylgst náið með undirbúningi leiksins nú síðustu dagana fyrir leikinn. Sem dæmi hefst í dag niðurtalning fyrir leikinn með ýmsum fróðleik um þátttöku Liverpool fyrr og nú í Evrópubikarnum. Að auki reynum við að birta það helsta sem er að frétta úr herbúðum Liverpool. Víst er að spennan fer vaxandi!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan