| AB

Gattuso vígreifur sem fyrr

Gennaro Gattuso, miðjumótor Milan, var ekki hrifinn af því að vera líkt við kettling í sjálfsævisögu Steven Gerrard.

Hann neitar því að leikmenn Liverpool hafi verið hvattir til dáða því þeir heyrðu leikmenn Milan fagna sigri í háflleik þegar staðan var 3-0 fyrir Milan: "Það er synd að slíkri lygi var dreift um okkur. Það særði mig meira en nokkuð annað. Félag eins og Milan hagar sér ekki á þann hátt. Við óskum Liverpool til hamingju með að hafa unnið bikarinn, sem var í höfuðstöðvum okkar í Via Turati í hálfleik en það er mikil synd að þeir skyldu bera þessar lygar upp á okkur."

Gattuso var að sjálfsögðu ekki ánægður með að heyra að Steven Gerrard hafi líkt sér við kettling þegar hann rifjaði upp leikinn í Istanbul í sjálfsævisögu sinni: "Ég er loðinn eins og kettlingur. Ég vil ekki svara svona fullyrðingum en ég er viss um að fjölmiðlar hafa gert of mikið úr þessu. Ef Gerrard finnst það í raun og veru get ég ekki gert mikið í því. Hann er frábær leikmaður sem gefur 100%. Mér finnst ég ekki vera eins og kettlingur heldur karlmaður sem gefst aldrei upp.

Liverpool er lið sem reynir að láta mann spila illa og kemur mönnum á bak við boltann og við verðum að passa okkur á því að það fari ekki í taugarnar á okkur. Hvernig sem leikurinn fer verður að hrósa Milan og Liverpool fyrir að komast aftur í úrslitaleikinn tveimur árum síðar. Benítez spáði þessu í janúar en ég bjóst ekki við að þetta myndi gerast svo fljótt aftur."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan