| Jón Óli Ólafsson

Aðalfundur Liverpoolklúbbsins er í kvöld

Aðalfundur Liverpoolklúbbsins á Íslandi verður haldinn í kvöld á Players í Kópavogi klukkan 20:00. Alllir sem hafa greitt árgjaldið fyrir þetta starfsár hafa atkvæðisrétt.

Í lögum klúbbsins um aðalfund þá er dagskrá fundarins svohljóðandi :

11. gr. Dagskrá aðalfundar skal vera:

- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Stjórn leggur fram skýrslu fyrir yfirstandandi starfsár
- Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga.
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
- Lagabreytingar, löglega fram bornar.
- Kosning formanns til tveggja ára.
- Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára.
- Kosning tveggja varamanna til eins árs.
- Kosning endurskoðenda.
- Ákvörðun um árgjald.
- Önnur mál.

Ekki verður kosið um formann þetta árið þar sem hann var kosinn til tveggja ára í fyrra. Þar sem Sigurður Hjaltested, sem kosinn var til tveggja ára í fyrra, hætti í stjórninni í vetur verður á þessum fundi kosinn einn maður í aðalstjórn til eins árs, auk þriggja til tveggja ára. Kjörtímabili Benedikts Jóns Sigmundssonar, Hallgríms Indriðasonar og Jóseps Svans Jóhannessonar lýkur og verður einnig kosið um þeirra sæti. Benedikt og Hallgrímur bjóða sig fram aftur næstu tvö árin, en Jósep Svanur hyggst hætta í stjórn.

Allir skuldlausir félagsmenn hafa atkvæðis og tillögurétt á fundinum. Hér er linkur á lög félagsins

Stjórn klúbbsins hvetur allar félagsmenn til að mæta á fundinn.

Aðalfundurinn verður haldinn á Players þann 17. maí og hefst klukkan 20:00.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan