Álit Kaká á Liverpool
Kaká, sem er án efa hættulegasti leikmaður AC Milan, segir álit sitt á Liverpool og fyrirliðanum Steven Gerrard.
"Liverpool er frábrugðið Manchester United að því leyti að liðið leikur dæmigerðan enskan bolta. Liðið er mjög vel þjálfað undir stjórn Benítez, er mjög taktískt lið og dekkar andstæðinginn stíft. Manchester United spilar boltanum betur og heldur boltanum lengur. Allir tala um að við viljum hefna okkar fyrir það sem gerðist árið 2005. Við töpuðum úrslitaleiknum, Liverpool varð Evrópumeistari og þannig verður það um aldur og ævi. Nú fáum við tækifæri til að skrifa nöfn okkar í sögubækurnar."
Kaká ber mikla virðingu fyrir fyrirliða Liverpool og vildi gjarnan hafa hann í sínu liði: "Gerrard er frábær leikmaður. Hann er nútímaleikmaður sem hleypur mikið, dekkar, á góðar sendingar, skorar mörk og er leiðtogi liðsins á vellinum. Ég myndi gjarnan vilja hafa hann í liðinu mínu."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

