| Sf. Gutt

Hroðaleg byrjun fór með deildina

Enn verður bið á því að enski meistaratitillinn rati aftur heim á Anfield Road. Sitt sýnist hverjum um ástæður þess. Þetta er álit Alan Hansen, sparkspekings hjá BBC.

"Áður en leiktíðin hófst taldi ég að Liverpool ætti góða möguleika á að vinna titilinn en hroðaleg byrjun liðsins batt strax endi á atlögu liðsins að titlinum. Það er Liverpool mikil sárabót að hafa komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Félagið hefur hins vegar ekki unnið deildina í 17 ár og það er alltof langur tími.

Þetta hefur verið skemmtileg leiktíð í Úrvalsdeildinni en það er mikið bil á milli fjögurra efstu liðanna og annarra liða í deildinni. Rafael Benítez, framkvæmdastjóri Liverpool, hefur nú þegar sagt að Liverpool muni leggja aðaláherslu á Úrvalsdeildina á næstu leiktíð. Ef liðið á hins vegar að eiga möguleika á að vinna deildina þarf hann að kaupa einn eða tvo leikmenn sem kosta á bilinu 25 til 30 milljónir sterlingspunda.

Ef Liverpool og Arsenal finnst erfitt að ná að komast upp fyrir Manchester United og Chelsea þá má segja að það sé næstum því ómögulegt fyrir önnur lið að komast í hóp fjögurra efstu liða. Bilið milli þessara liða  og annarra stækkar bara og stækkar. Ég á ekki von á öðru en að sömu fjögur lið skipi efstu sætin í deildinni á næstu leiktíð. Ég veit þó ekki hvaða röð verður á þeim. Það verður spennandi að sjá."





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan