| Sf. Gutt

Besian Idrizaj skorar fyrir Luton

Besian Idrizaj skoraði á dögunum fyrir Luton Town en hann hefur verið í láni þar. Austurríkismaðurinn skoraði þriðja mark Luton þegar liðið lagði Southend að velli 3:1 á útivelli. Sigurinn dugði Luton ekki því liðið hafnaði í næst neðsta sæti næst efstu deildar og féll ásamt Southend og Leeds.

Besian kom til Liverpool kom frá austurríska liðinu LASK Linz 25. ágúst 2005. Besian er sókndjarfur miðvallarleikmaður ættaður frá Kosovo og hefur haldið með Liverpool frá barnæsku. Hann hefur enn ekki leikið með aðalliði Liverpool en hann var fastamaður í varaliðinu á þessari leiktíð og skoraði fjögur mörk fyrir það áður en hann fór í lán til Luton.

Besian er einn af fjölmörgum efnilegum leikmönnum Liverpool. Hann er í sömu stöðu og margir. Verður hann nógu góður til að leika með aðalliði Liverpool? Tíminn einn leiðir það í ljós.

 

 

 

 



 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan