Varaliðið vann
Varaliðið vann sinn fjórða sigur í síðustu fimm leikjum þegar liðið vann góðan útisigur á Sheffield United í gærkvöldi. Þessi góða rispa varaliðsins að undanförnu hefur lyft liðinu upp í fimmta sæti deildarinnar. Fram eftir allri leiktíð var liðið í neðri hluta deildarinnar þannig að þróunin upp á síðkastið er mjög gleðileg. Liverpool er komið í fimmta sæti varaliðsdeildarinnar með sigrinum.
Gary Ablett stillti upp óreyndu liði eins og svo oft á þessari leiktíð. Af þeim leikmönnum sem hófu leikinn hafði aðeins Nabil El Zhar spilað með aðalliðinu. Li Tie, sem var eitt sinn hjá Everton, gat komið Sheffield United yfir á 10. mínútu þegar Padelli sló boltann af veikum mætti út í teiginn eftir fyrirgjöf en Tie skaut beint í Flynn á marklínunni. Jack Hobbs kom Liverpool yfir á 21. mínútu eftir að skot Jays Spearing missti marks. Jack rak fótinn í boltann og stýrði honum neðst í markhornið. Nabil El Zhar hefði átt að bæta öðru marki við í upphafi síðari hálfleiks eftir að hann hafði brotist í gegnum vörn United og var einn gegn Paul Gerrard í markinu. Hinn reyndi Paul, sem eins og Li Tie var hjá Everton, sá hins vegar við honum. Varamaðurinn Jamaíkabúinn Reneil Sappleton, sem er á reynslu hjá félaginu, tryggði 2:0 sigur á lokamínútu leiksins. Hann tók við sendingu, lék á varnarmann og skaut þrumuskoti framhjá Paul í markinu sem var bjargarlaus.
Liverpool: Padelli, Darby, Insua, Huth, Hobbs, Spearing, Anderson, Flynn, Lindfield (Sappleton 80.mín.), El Zhar og Threlfall (Brouwer 70. mín.).
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Jack Hobbs.
Ýmsir reiknuðu með því að Harry Kewell myndi taka þátt í þessum leik. Hann hefur verið að æfa að undanförnu og staðarblaðið Daily Post gerði því skóna í gær að Harry myndi spila með í þessum leik. Svo varð þó ekki raunin.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

