| Ólafur Haukur Tómasson

Tilboð Liverpool hunsað

Iriome Gonzalez hafnar LiverpoolUngstirnið Iriome Gonzalez sem leikur fyrir Tenerife hefur hunsað tilboð Liverpool og segir ástæðuna vera þá að hann vilja halda áfram knattspyrnuþjálfunn sinni hjá Tenerife. Rafa Benítez hefur mikinn áhuga á Iriome Gonzalez sem er 22 ára og leikur fyrir Tenerife á Spáni, og hann vonaðist til að geta keypt Gonzalez sem yrði í leiðinni fyrstu kaup félagsins eftir yfirtöku.

En Gonzalez telur sig þó ekki vera tilbúinn að flytja sig um set og fara í ensku deildina, þó hann játi það að aðdráttaraflið við að spila fyrir Liverpool sé mikið.

Faðir leikmannsins sem er einnig umboðsmaður hans staðfesti ákvörðun hans.

,,Við erum þakklátir fyrir áhuga Liverpool en vilji hans til að halda sér heima verður að koma fyrst," sagði Gonzalez eldri.

,,Liverpool er stórt félag en það þýðir mikið fyrir Iriome að spila fyrir liðið í heimabæ sínum."

Benítez virðist vera óstöðvandi í að reyna að bæta við sig ungum leikmönnum en nýjasta nafnið til að koma fram á sjónarsviðið ásamt Gonzalez er Giovanni Dos Santos sem er í varaliði Barcelona.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan