Ungur Spánverji orðaður við Liverpool
Talið er að Rafael Benítez sé búinn að eyrnamerkja 1,5 milljónir punda til þess að kaupa Iriome Gonzalez, 19 ára hægri kantmann Tenerife í sumar.
Gonzalez hefur spilað 6 leiki með aðalliði Tenerife á þessu tímabili en liðið leikur í næst efstu deild á Spáni. Reglur á Spáni segja til um að leikmaður sem kemur úr unglingaliði félags getur ekki skrifað undir atvinnumannasamning fyrr en hann hefur spilað 10 leiki með aðalliði félagsins. Það er því líklegt að Tenerife muni láta hann spila nokkra leiki í viðbót svo að þeir geti krafist almennilegrar upphæðar fyrir leikmanninn í sumar.
Benítez hefur fylgst með Iriome síðan hann var að spila með unglingaliðum félagsins og er hann nokkuð viss um að ná að klófesta þennan efnilega leikmann á undan öðrum liðum sem hafa einnig verið að fylgjast með honum.
Það verður spennandi að fylgjast með því þegar leikmannamarkaðurinn opnar að nýju í júní því talið er að Benítez fái mikinn stuðning frá nýjum eigendum félagsins til leikmannakaupa í sumar.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

