| HI

Vítið umdeilda

Vítaspyrnan sem jöfnunarmark Liverpool kom upp úr hefur vakið nokkrar umræður og verið umdeild. Hér á eftir fara viðbrögð manna við þessum dómi.

Byrjum á Houllier: "Það var ómögulegt að sjá það þaðan sem ég stóð. Það eina sem ég veit er að við vorum í góðri sókn og Gary MacAllister var umþað bil að fara að skjóta og líklega skora áður en hann var felldur. Mér fannst hins vegar markið hjá Robbie vera löglegt en stundum er maður heppinn að einu leyti en óheppinn að öðru leyti.

Gary McAllister, sem fiskaði vítið, fannst Liverpool hafa átt það skilið: "Auðvitað er ég hæstánægður með að fá víti en ég gat alls ekki skilið af hverju Stanislav Varga, sem felldi mig, fékk ekki annað gult spjald því hann var búinn að fá gult í leiknum. Þetta var gott marktækifæri en þetta getur sveiflast til. Vítum sem við höfum átt að fá hefur veirð sleppt nokkrum sinnum þannig að vonandi jafnast það út."

Viðbrögð Peter Reid, framkvæmdastjóra Sunderland, voru hins vegar þessi: "Ég var langt frá staðnum þar sem vítið var dæmt. Strákarnir sögðu mér að brotið hefði átt sér stað utan teigs en þetta var of tæpt til að ég gæti dæmt um það. Þetta breytti hins vegar leiknum og um tíma misstum við þann aga sem hafði einkennt okkur í leiknum."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan