Rafael Benítez svarar fyrir sig!
Rafael Benítez varði sig fimlega á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn PSV í kvöld.
"Ef´þið skoðið deildirnar í Evrópu vinna yfirleitt bara toppliðin til verðlauna. Afgangurinn af liðunum reynir sitt besta. Við höfum unnið fjóra bikara á síðustu tveimur árum og þar á meðal er mikilvægasti bikar í heimi, Meistaradeildarbikarinn. Fjölmargir toppframkvæmdastjórar hafa ekki Meistaradeildarbikarinn í verðlaunaskápnum sínum. Við unnum 12 leiki í röð, héldum hreinu í 33 leikjum og fengum 82 stig í deildinni á síðustu leiktíð þannig að við vitum hvernig á að vinna leiki í deildinni.
Það er erfitt fyrir erlenda framkvæmdastjóra að aðlagast Úrvalsdeildinni og stjórar annarra liða geta ekki státað af því að hafa unnið fjóra bikara á tveimur árum nema Chelsea sem hefur unnið deildina tvisvar, Carling-bikarinn og Samfélagsskjöldinn.
Ég veit ekki hversu margir enskir framkvæmdastjórar hafa reynt fyrir sér erlendis, John Toshack (er reyndar velskur), Howard Kendall - það er ekki auðvelt. Það var því ánægjulegt fyrir mig að vinna Meistaradeildina með nýtt lið og á meðan ég var að aðlagast öðru tungumáli og nýjum lífsstíl."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

