12.02.2001 00:02 | HI
Enn lengist meiðslalistinn
Enn virðist einhver meiðsladraugur vera meðal leikmanna Liverpool en Emile Heskey og Steven Gerrard þurftu báðir að yfirgefa völlinn í leiknum gegn Sunderland vegna meiðsla. Heskey sneri sig á ökkla og var skipt útaf eftir tæpan hálftíma og Gerrard fann fyrir eymslum í nára.
Houllier segist hafa sérstakar áhyggjur af meiðslum Heskeys en telur þó einhverjar líkur á því að þeir geti leikið gegn Roma á fimmtudaginn.
Til baka