| Sf. Gutt

Varaliðið gerði jafntefli

Varaliðið lék æfingaleik við Oldham nú síðdegis. Liðin skildu jöfn 1:1 í roki og rigningu í Oldham. Liverpool telfdi fram ungu liði gegn reyndum leikmönnum heimaliðsins. Aðeins Danny Guthrie hefur, af þeim sem léku, leikið með aðalliðinu. Unglingalandsliðsmaðurinn Adam Hammill kom Liverpool yfir með markið eftir frábæran einleik á 25. mínútu. Adam skoraði einmitt fyrir undir 19 ára landsliðið í síðustu viku. Heimamenn jöfnuðu um miðjan síðari hálfleik. Gary Ablett var ánægður með sína menn eftir leikinn og sagði þá hafa staðið sig vel við erfiðar aðstæður.  

Liverpool: Martin, Smith, Darby (Threlfall 45. mín.), Antwi, Roque, Mannix, Anderson (El Zhar 45. mín.), Peltier, Lindfield (Idrizaj 45. mín.), Guthrie og Hammill (Flynn 45. mín). Ónotaður varamaður: Roberts.

Varaliðið hefur ekki leikið nema fimm leiki á leiktíðinni. Gary Ablett þjálfari þess hefur því reynt að fá æfingaleiki til að halda mönnum við efnið og er annar áætlaður í næstu viku. Liðinu hefur ekki vegnað vel í varaliðsdeildinni og fjórir fyrstu leikir liðsins töpuðust.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan