| Sf. Gutt

Unglingaliðið enn á siglingu

Unglingalið Liverpool komst í átta liða úrslit bikarkeppninnar með 3:1 sigri á Stockport á Anfield Road í gærkvöldi. Sóknarmaðurinn Brian McIlroy skoraði tvívegis í fyrri hálfleik áður en gestirnir minnkuðu muninn í lok hálfleiksins. Í þeim síðari tryggði Neil Mellor sigurinn með skalla.

Stockport byrjaði leikinn vel og hefði getað skorað í tvígang áður en Liverpool komst yfir á 13. mínútu gegn gangi leiksins. Brian McIlroy skoraði þá eftir undirbúning Neil Mellor. Þeir John Welsh og Stephen McNulty fengu góð færi til að auka forystuna áður en Brian skoraði sitt annað mark um miðjan hálfleikinn. Aftur var það félagi hans í sókninni sem lagði upp markið nú með góðri stungusendingu. Liverpool hafði nú góð tök á leiknum en á síðustu mínútu fyrri hálfleiks minnkaði Fraser McLachlan muninn með þrumuskoti af stuttu færi.

Síðari hálfleikur var ekki eins fjörugur og sá fyrri. Fá færi sköpuðust og hart var barist. Brian McIlroy fékk gott færi til að ná þrennu en mistókst og eins átti John Welsh gott marktækifæri. Stockport reyndi að jafna en sjö mínútum fyrir leikslok gerði Liverpool út um leikinn. Mark Peers lék upp hægri kantinn og sendi hárnákvæma sendingu inn á markteiginn þar sem Neil Mellor kom og skallaði fallega í markið. Þar með var sigurinn í höfn og sæti í 8 liða úrslitum tryggt.

Hughie McAuley þjálfari liðsins var að sjálfsögðu ánægður með að liðið komst áfram en telur að liðið þurfi að leika betur til að komast í undanúrslit. "Þetta var erfiður leikur og við þurftum að hafa fyrir því að komast áfram enda vissum við að Stockport er með seigt lið. Mér fannst sóknarmennirnir Brian McIlroy og Neil Mellor leika mjög vel saman. Þeir hafa sýnt það áður að þeir ná vel saman. Við þurfum að leika betur í næstu umferð. Í þetta skiptið dugði leikur okkar til sigurs. Það er gaman að liðið sé komið í átta liða úrslit." Liverpool hefur leikið mjög vel í keppninni á þessari leiktíð og í síðustu þremur leikjum hefur liðið skorað fjórtán mörk. Liverpool hefur ekki komist svona langt í Unglingabikarkeppninni frá því liðið sigraði í keppninni 1996. Það er í eina skiptið í sögu félagsins sem liðið hefur unnið þessa keppni.

Liverpool: Parry, Vaughan, Coupe, Otsemobor, McNulty, Welsh, Peers, Mannix, Mellor, McIlroy, Prince.
Varamenn: Dawes, Hogg, Noel, Nicholas, Raven.
Áhorfendur: 2.014.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan