Liverpool lagði Lincoln að velli
Liverpool lagði Lincoln 2:1 að velli í kvöld. Leikurinn var hluti af kaupsamningi Liverpool við Lincoln þegar Jack Hobbs hafði vistaskipti fyrir ári. Liverpool tefldi fram blöndu af yngri og reyndari leikmönnum. Tveir nýbakaðir Skjaldarhafar Mark Gonzalez og Fabio Aurelio tóku þátt í leiknum. Robbie Fowler sneri aftur eftir meiðsli og það sama gerði Neil Mellor sem lék sinn fyrsta leik í langan tíma. Stephen Warnock lék líka sinn fyrsta leik á þessu sumri. Jack Hobbs fékk þann heiður að vera fyrirliði Liverpool í leiknum.
Liverpool lék mjög vel í fyrri hálfleik og þeir Robbie Fowler og Mark Gonzalez fóru á kostum. Það var einmitt Mark sem kom Liverpool yfir á 19. mínútu. Skjaldarhafarnir Mark og Fabio Aurelio unnu að markinu. Brasilíumaðurinn sendi stungusendingu á Chílebúann sem skoraði laglega. Austurríkismaðurinn Besian Idrizaj kom Liverpool í 0:2 rétt fyrir hálfleik þegar hann fylgdi vel á eftir þegar skalli Godwin Antwi hafði farið í þverslá. Lincoln, sem leikur í neðstu deild, náði að rétta sinn hlut þegar Ryan Semple skoraði eftir misskilning í vörn Liverpool. Neil Mellor lét strax til sín taka eftir að hann kom til leiks og hefði getað skorað þrennu. Tvívegis var vel varið frá honum og svo átti hann skot í stöng.
Lincoln City: Marriott (Rayner 30. mín.), Amoo (Foster 45. mín.), Moses (Clarke 45. mín.), Cryan, Mayo, Frecklington (Watt 45. mín.), Kerr, Semple (King 68. mín.), Warlow (Sherlock 45. mín.), Gritton og Ryan.
Liverpool: Martin, Kromkamp (Roque 45. mín.), Aurelio (Warnock 45. mín.), Antwi (Smith 62. mín.), Hobbs, Diao, Anderson (Barratt 76. mín.), Peltier, Fowler (Hammill 45. mín.), Idrizaj (Mellor 62. mín.) og Gonzalez (Guthrie 45. mín.).
Áhorfendur á Sincil Bank: 9.461.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Mark Gonzalez. Átti mjög líflegar 45 mínútur og skoraði frábært mark.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

