| SSteinn

Vladimir Smicer orðinn leikmaður Bordeaux

Vladimir Smicer hefði ekki getað kvatt Liverpool betur en hann gerði.  Hann setti heldur betur mark sitt á úrslitaleikinn í Istanbul og átti stóran þátt í að ná bikarnum heim. Hann skoraði tvívegis eftir að hafa komin inn sem varamaður. Fyrst í venjulegum leiktíma og svo skoraði hann með síðasta sparki sínu í búningi Liverpool í vítaspyrnukeppninni. Þeir sem hafa hitt Vladi, vita það að þar er á ferð einn mesti öðlingur sem hægt er að hugsa sér.  Hann er frábær persónuleiki og þó hann hafi aldrei virkilega náð að sýna sitt rétta andlit hjá Liverpool, þá verður hans nú samt saknað. 

Vladimir hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við franska liðið Bordeaux. Gefum Vladi orðið:  "Bordeaux er falleg borg við sjávarsíðuna og þetta er lið sem alltaf hefur verið við toppinn í Frakklandi.  Síðasta tímabil var ekki þeirra besta tímabil og nú vilja þeir komast aftur á sinn stall.  Ég er ánægður með að geta lagt lóð á vogarskálarnar.

Af öllum þeim tilboðum sem ég hafði úr að velja, þá leist mér best á þetta.  Bordeaux vildi fá mig á síðasta ári eftir Evrópumótið. En þá þurfti ég að fara í aðgerð á hné og var frá í meira en hálft tímabilið.  Þeir sýndu mér samt áfram áhuga og það er það mikilvægasta fyrir leikmenn þegar þeir eru að leita sér að nýju félagi."

Takk fyrir Valdi og gangi þér vel.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan