| Gunnar Gunnarsson

Fagnaði með stuðningsmönnunum

Vladimir Smicer viðurkennir að hann er leiður yfir því að yfirgefa Liverpool eftir að hafa samfagnað með stuðningsmönnunum eftir leikinn ótrúlega í Istanbul

Vladimir fór út á götu og fagnaði með stuðningsmönnunum á Taksim torgi eftir að hafa hjálpað Liverpool að vinna upp þriggja marka forystu AC Milan og sigrað leikinn í vítaspyrnukeppni.

Tékkinn knái skoraði annað mark Liverpool. Hann skoraði einnig í vítakeppninni og fer því frá félaginu eftir að hafa lagt sitt að mörkum á einum stærsta degi í sögu félagsins.

"Ég fagnaði með stærsta vindli sem að þið hafi nokkurn tíman séð. Ég fór út til stuðningsmannanna og dansaði úti á götu. Það var ótrúlegt að vera með stuðningsmönnunum. Ég vildi bara deila með þeim hvernig mér leið. Þetta var stærsta kvöld lífs okkar. Ég fór alls ekkert að sofa. Það er engin þörf fyrir að sofa eftir svona kvöld. Ég vildi hætta á toppnum og ég er stoltur yfir því að hafa sýnt að ég get spilað vel."  

"Mér var tilkynnt það fyrir tveimur mánuðum að ég myndi ekki fá nýjan samning og ég spurði stjórann að því hvort að hann þyrfti á mér að halda eða hvort að ég mætti fara í frí. Hann sagði að það væri enn þörf fyrir mig og það var allt sem að ég vildi heyra. Ég elska Liverpool. Bæði börnin mín eru fædd hér og það verður mjög erfitt að fara héðan."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan