| SSteinn

Vladi afar stoltur

Rafael Benítez hefur tilkynnt Vladimir Smicer það að hann muni ekki fá endurnýjaðan samning í sumar og því lýkur 6 ára dvöl hans hjá Liverpool.  Vladi vill halda áfram að spila á Englandi og er þessa stundina að skoða nokkur tilboð.  Hér gefur að líta stórkostlegt viðtal við þennan afar geðþekka kappa:

Vladi:  "Það er mjög sorglegt fyrir mig að vera að fara, vegna þess að þegar þú eyðir 6 árum í lífi þínu hjá sama félaginu, þá mun það ávallt vera í hjarta þínu.  Liverpool er eitt stærsta og besta félag í veröldinni, þannig að mér finnst það sorglegt að þurfa að fara.  Ég var hryggur yfir því að fá ekki tækifæri á að spila í síðasta skiptið á Anfield, en kannski mun ég snúa hingað aftur á næsta tímabili með öðru liði.  Ég vil vera áfram í þessu landi því fyrir mér er enska úrvalsdeildin sú besta í heiminum.

Spænska deildin er teknískari og sú ítalska hefur alltaf verið mjög sterk, en stemmningin í Seríu A er ekki sú sama og hérna.  Standardinn á fótboltanum hérna er alltaf að batna og batna, sem sést vel á Chelsea og Arsenal og þeirri staðreynd að Liverpool hefur náð í úrslitaleikinn í Meistaradeildinni."

Og hverjar skyldu þá vera bestu minningar Vladi af dvöl hans hjá liðinu?

"Hápunkturinn var auðvitað það að vinna 5 gullverðlaunapeninga árið 2001.  Það var frábært tímabil hjá okkur.  Mín stærstu vonbrigði eru meiðslin mín.  Ég átti erfiða byrjun og það var alltaf þannig að þegar ég var að komast í gott form, þá meiddist ég.  Ég veit það að það líkaði ekki öllum við mig sem leikmann, en hérna á ég marga stuðningsmenn og góða vini og ég hefði bara óskað þess að hafa ekki lent í svona miklum meiðslum, því þá hefði ég getað sýnt mun meiri stöðugleika.

Persónulega finnst mér bestu leikir mínir hafa komið þegar ég spilaði meira miðsvæðis og þá náði ég að taka betur þátt í spilinu.  Ég var aldrei þessi sanni kantmaður."

Smicer vonast nú eftir að ná að bæta við einni góðri lokaminningu í Liverpool treyjunni með því að hjálpa liðinu við að vinna Meistaradeildina í næstu viku:

"Ég vona að ég verði eitthvað með.  Það er ekki til betri stund til að enda ferilinn hjá Liverpool en að taka þátt í úrslitaleik í Meistaradeildinni.  Þegar ég var meiddur, þá dreymdi mig að Liverpool myndi spila gegn AC Milan á San Siro og vinna leikinn.  Ég vona bara að þessi draumur fyrir sigri rætist.  Ég spilaði smá rullu gegn Bayer Leverkusen og Juventus fyrr í keppninni, en það eina sem ég get gert núna er að bíða og sjá hvað gerist í næstu viku.

Núna langar mig bara að kveðja alla hjá Liverpool og segja þeim hversu stoltur ég er yfir því að hafa verið hjá félaginu.  Sigur í næstu viku er besta aðferðin við að kveðja."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan