UPPFÆRT: Á förum!
8 leikmenn eru örugglega á förum frá Liverpool í sumar. Bolton segist vera nálægt því að ná samkomulagi við Liverpool um kaup á El Hadji Diouf. Rafa er sagður reiðubúinn að sætta sig við 3 milljón pund en Liverpool keypti hann á tíu eftir HM 2002. Gregory Vignal sem hefur leikið vel með Rangers á þessari leiktíð hefur þegar staðfest að hans nærveru sé ekki óskað lengur hjá Liverpool. Vladimir Smicer hefur staðfest að hann fari frá Liverpool í sumar því að Benítez telji ekki lengur þörf fyrir hann. Hann hefur sagt að nokkur lið hafi áhuga á sér, m.a. fyrrverandi félagar hans í Lens. Ennfremur verða samningar Paul Harrison, Patrice Luzi (mynd af honum er til vinstri), Jon Otsemobor, Richie Partridge og Mark Smyth ekki endurnýjaðir í sumar sem þarf ekki að koma neinum á óvart. Kannski er mesta eftirsjáin í Otsemobor sem maður vonaðist alltaf til að myndi ná fótfestu hjá Liverpool. Hann hefur ótvíræða hæfileika en einhverra hluta vegna telur Rafa hann ekki nógu góðan og verður maður að treysta dómgreind hans enda þekkir hann leikmanninn betur en aðdáendurnir.
Fullyrt er að kaupin á Jose Reina markverði Villareal séu frágengin og því líkur á að Jerzy Dudek sé á förum, jafnvel til fyrrverandi félaga í Feyenoord. Meiðslaboltinn Chris Kirkland gæti einnig verið á förum eftir mikla hrakafallasögu, sérstaklega í ljósi komu Scott Carson til liðsins. Óvíst er hvort samningur Mauricio Pellegrino verði endurnýjaður. Hann hefur átt afar misjafna leiki en koma hans varð allavega til þess að Sami Hyypia færðist allur í aukana og tryggði sér áframhaldandi veru hjá Liverpool. Framtíð Milan Baros er einnig í lausu lofti en frammistaða hans undanfarna mánuði hefur valdið miklum vonbrigðum. Anthony Le Tallec vann sé inn fáa punkta fyrir að æða í burtu frá Liverpool í upphafi tímabils og kom aðeins við sögu í 7 leikjum á þessu tímabili og gæti hann hafa klúðrað sinni framtíð endanlega hjá Liverpool. Harry Kewell hefur verið mikið á milli tannanna á fólki en eitthvað segir manni að hann muni fá einn séns í viðbót. Salif Diao og Bruno Cheyrou eru í báðir í láni og öruggt að hvorugur þeirra eigi framtíð fyrir sér hjá Liverpool en ekki er víst hvort félög vilji splæsa á þá pening í sumar og að þeir verði áfram í láni næsta tímabil.
Hverjir munu svo bætast við hópinn er stóra spurningin en eflaust munu um tugir nafna veltast um í umræðunni í sumar. Þær vangaveltur koma síðar í fréttahorni liverpool.is.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

