Smicer segist vera á förum
Vladimir Smicer segir í viðtali við tékklenska fjölmiðla að hann sé líklega á förum frá Liverpool: "Samningur minn er að renna út og enginn hefur rætt við mig um nýjan samning svo að ég held að dvöl mín hér sé senn á enda. Ég er dapur yfir því. Ég hef átt sex frábær ár hérna og fjölskyldu minni líður eins og heima hjá sér. Mig langaði að sýna hvað í mér býr eftir meiðslin en það hefur ekki verið auðvelt. Ég veit ekki hvert ég fer, kannski innan Englands eða til Frakklands.
Ég er búinn að fá sex tilboð. Ég mun ganga úr skugga um að hnéið á mér sé í lagi og síðan velta framhaldinu fyrir mér. Ég vil helst leika einhvers staðar við sjávarsíðuna þar sem er sólríkt og heitt. Bordeaux, Monaco eða Marseille væri fínt eftir þó nokkur ár af mildu veðri og rigningu."
Smicer hefur leikið 180 leiki fyrir Liverpool og skorað 18 mörk frá 1999. Besta tímabil hans var 2000-2001 þegar hann lék 49 leiki og skoraði 7 mörk. Meiðsli hafa sett mark sitt á feril hans hjá Liverpool frá upphafi en þessi afskaplega geðþekki náungi virðist því miður aldrei hafa verið nógu harður af sér fyrir enska boltann og vonandi mun honum vegna vel á nýjum slóðum.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

