| HI

Smicer á leið til Lens?

Vladimir Smicer segir það 90% öruggt að hann yfirgefi Liverpool í sumar. Smicer hefur í raun aldrei náð að standa undir væntingum þó að hann hafi einstaka sinnum sýnt hvað í honum býr með Liverpool. Stöðugleikann hefur vantað hjá honum og tíð meiðsli hafa ekki hjálpað upp á sakirnar.

"Ég er nánast 90% viss um að ég sé á leið frá Liverpool. Tímabilið hefur verið mjög erfitt en ég hef fengið tvö tilboð sem eru mjög spennandi og það eru allar líkur á að ég fari aftur til Lens," segir Smicer.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan