| SSteinn

Verður David Raven sá næsti?

David Raven hefur lengi verið talinn eitt mesta efni sem komið hefur fram á Englandi lengi, þegar horft er til varnarmanna.  Hann hefur æft með aðalliði Liverpool á Melwood síðan í janúar og búast margir við því að hann verði næstur í röðinni með það að festa sig í sessi í aðalliðinu.  Hann getur bæði spilað sem bakvörður og miðvörður og hefur spilað með öllum yngri landsliðum Englands (fyrir utan U-21 árs liðið) og var nú síðast fyrirliði U-20 ára liðs Englands.  Hann er ánægður með komu Rafael Benítez til liðsins.

 

Raven:  “Framkvæmdastjórinn talar reglulega við okkur um leik okkar og hefur fyllt okkur miklu sjálfstrausti.  Það er frábært að sjá Warnock og Potter fá tækifærið.  Darren er á svipuðum aldri og ég, þannig að hann hefur sýnt það að þetta er hægt.  Það var frábært fyrir hann þegar hann þreytti frumraun sína með aðalliðinu og vonandi get ég gert hið sama.

 

Leikur minn hefur batnað mikið síðan ég kom á Melwood og ég tel að ég hafi bætt mig á mörgum sviðum, svo sem í fyrstu snertingu við bolta, stjórn á boltanum, sendingum, líkamlegu formi og leikskilningi.  Mér líður mjög vel.  Ég er farinn að spila vel og vonandi held ég því áfram og næ að koma mér ofar í röðina.  Ég hef mikla trú á sjálfum mér og þetta eru markmið mín.”

 

Það er ljóst að æskudraumur hans myndi rætast ef hann næði að brjóta sér leið í liðið, vegna þess að hann hefur verið stuðningsmaður liðsins frá barnsaldri.  Ef fram heldur sem horfir, þá er ekki langt að bíða þar til við sjáum þennan hæfileikaríka varnarmann í leik með aðalliðinu.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan