| SSteinn

Benítez og Akademían

Margir stuðningsmenn hafa kvartað yfir því á undanförnum tímabilum að ungir strákar hjá félaginu fái fá tækifæri.  Rafa Benítez hefur þó verið að gefa ungum strákum sénsinn og hafa bæði Stephen Warnock og Darren Potter leikið fyrir liðið á þessu tímabili.

Rafa:  "Ég hef verið að ræða við Steve Heighway (Stjórnanda Akademíunnar) í þessari viku um það hvernig við viljum ná árangri í framtíðinni.  Við vitum að hlutirnir þurfa að breytast.  Eitt af því er að útsendarar okkar þurfa að vinna meira með Steve og Akademíunni.  Við viljum tengja Akademíuna meira við Melwood.  Við erum tilbúnir til að fylgjast mun betur með hverjum einasta leikmanni í Akademíunni.  Við viljum sjá hvort þeir séu í stakk búnir til að koma í aðalliðið.

Aðstoðarmaður minn, Paco Herrera er að vinna með yfirmanni útsendara okkar, Frank McParland og þeim sem sér um útsendara hjá Akademíunni, Barry Whitbread.  Þeir munu njósna um leikmenn fyrir og frá Akademíunni og fyrir aðalliðið.

Í varaliðinu sem spilaði á þriðjudaginn, þá voru 5 unglingar úr Akademíunni.  Það er mikilvægt fyrir okkur að vita hvað við erum með í höndunum.  Þegar við vitum það, þá er hægt að vita í hvaða átt við ætlum að fara.  Ef við erum með þrjá Owen-a eða Gerrard-a á leiðinni, þá bíðum við eftir þeim.  Ef við höfum ekkert slíkt, þá þurfum við að leggja enn meira á okkur með liðsinni útsendarana til að undirbúa framtíðina betur.

Við munum hitta alla útsendara okkar næsta mánuðinn.  Eftir það þá byrjum við að ákveða hvaða leikmenn við viljum skoða betur."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan