| Sf. Gutt

Elska félagið og ætla að vera áfram!


Það eru miklar breytingar framundan hjá Liverpool. Einhverjir leikmenn halda á braut og aðrir koma. En fyrirliði Liverpool ætlar sér að vera áfram hjá félaginu og taka þátt í þeim nýja kafla sem hefst þegar nýr framkvæmdastjóri tekur við af Jürgen Klopp.

„Það fara miklar í hönd mikl­ar breyt­ing­ar og ég er hluti af þeim. Ég held að forráðamenn fé­lagsins séu mjög upp­teknir við að leita að nýjum framkvæmdastjóra og það er auðvitað forgangsmál."

,,Eins og ég hef áður sagt er ég mjög ánægður hérna. Það fer ekkert á milli mála að ég elska félagið. Fé­lagið er stór hluti af lífi mínu. Meira get ég ekki sagt." 


Jürgen Klopp er á förum frá Liverpool. Virgil segir að miklar breytingar séu framundan hjá Liverpool F.C. en þær verði spennandi.

,,Það eru miklar breytingar framundan. Það er kannski ekki rétt að segja að maður sé aðeins smeykur við allar þær breytingar sem verða. En sannarlega fer áhugaverður og spennandi tími í hönd. Ég er virkilega stoltur af því að hafa spilað fyrir hann, barist fyrir hönd félagsins og notið velgengni. Lokaumferðin verður tilfinningarík."

Það er gott til þess að vita að Virgil vilji vera áfram hjá Liverpool. Hann er búinn að vera frábær á leiktíðinni og einn allra besti leikmaður liðsins. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan