| Mummi

Miðasala á Liverpool – Chelsea


Stjórn Liverpoolklúbbsins á Íslandi barst óvænt miðar á leik Liverpool – Chelsea sem fer fram
miðvikudaginn 31.janúar 2024.

Á þriðjudaginn 16.01.2024 kl. 17:30 opnum við fyrir sölu á miðum á leik Liverpool – Chelsea sem fer
fram miðvikudaginn 31. janúar á Anfield í Liverpool. Verð fyrir hvern miða er aðeins 15.000 krónur.
Einungis skráðir félagar sem hafa greitt árgjaldið geta keypt miða. Til að kaupa miða þarf að fara inná
sportabler.com eða Sportabler appið og fara inná svæðið sitt hjá Liverpoolklúbbnum og kaupa
miðana þar í gegnum markaðstorgið.

ATH. Þar sem við fengum einungis úthlutuðum 11 miðum og til þess að allir eigi jafnan rétt á að
nálgast miða verður reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“ að gilda
Í boði er að kaupa 2 miða á mann eða 1x3 miða.

Við getum ekki ábyrgst að miðarnir séu hlið við hlið en við reynum eftir fremsta megni að raða því
þannig niður en því miður fáum við ekki alltaf úthlutað öllum miðum saman. Í flestum tilfellum fær
fólk miða saman.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið [email protected]

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan