| Sf. Gutt

Virgil van Dijk frá næstu vikur


Virgil van Dijk verður frá næstu vikur vegna meiðsla. Hann fór af velli í hálfleik á móti Brentford og nú er komið í ljós að hann verður úr leik lengur en talið var í fyrstu.



Virgil fann til aftan í læri og var sem fyrr segir skipt út af í hálfleik í síðasta leik. Þá var ekki talið að meiðslin væru slæm en þau eru verri en talið var. Um er að ræða tognun aftan í læri. Hollendingurinn verður frá í nokkrar vikur og komur sennilega ekki aftur til leiks fyrr en í febrúar. 

Þetta eru auðvitað slæmar fréttir. Óheppni Liverpool í sambandi við meiðsli á leiktíðinni hafa ekki riðið við einteyming. Reyndar ber svo vel til núna að allir aðrir miðverðir Liverpool eru ómeiddir. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan