| Sf. Gutt

Kveðja frá Sadio Mané!


Sadio Mané sendi okkur stuðningsmönnum Liverpool þessa kveðju við brottför sína til Bayern München. Kveðjuna birti hann á samfélagsmiðlum.




Halló kæru aðdáendur!

Þeð er erfitt að finna réttu orðin. Mig langar bara að þakka ykkur frá mínum dýpstu hjartarótum. Það hefur verið mér mikil ánægja að eiga svolítinn þátt í þessari mögnuðu velgengni sem við höfum átt saman síðustu 6 árin. 

Þið voruð alltaf til staðar fyrir mig. Jafnt í meðbyr og þegar á móti blés. Því mun ég aldrei gleyma. Þakka ykkur enn og aftur. 

You´ll never walk alone. 

Sadio Mané

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan