| Sf. Gutt

Xherdan Shaqiri á förum


Fjölmiðlar greina frá því að Svisslendingurinn Xherdan Shaqiri sé á förum frá Liverpool. Brottför hans til franska liðsins Lyon er í burðarliðnum. Hún hefur enn ekki verið staðfest. 

Franska liðið borgar, samkvæmt fréttum, 9,5 milljónir sterlingspunda fyrir Svisslendinginn. Xherdan kom til Liverpool sumarið 2018. 

Sem fyrr segir hefur sala Xherdan ekki verið staðfest. En það er næsta víst að hún verður að veruleika.  

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan