| Sf. Gutt
Liverpool Football Club sendi í morgun frá sér opinbera yfirlýsingu í kjölfar þess að tveir leikmenn félagsins urðu fyrir kynþáttafordómum á samfélagsmiðlinum Instagram. Um er að ræða þá Trent Alexander-Arnold og Naby Keita.
Þeir Trent og Naby voru ekki upp á sitt besta í Evrópuleiknum við Real Madrid í gærkvöldi frekar en aðrir leikmenn Liverpool. En eins og svo oft voru þeldökkir leikmenn teknir sérstaklega fyrir í óvæginni gagnrýni þar sem vísað var til litarháttar þeirra. Þeldökkir knattspyrnumenn hafa trekk í trekk orðið fyrir svona netárásum ef þeir hafa ekki spilað vel eða gert afdrifarík mistök í leikjum. Ekki síst núna á þessari leiktíð!
Í yfirlýsingu Liverpool FC er þetta hátterni fordæmt á allan hátt. Í yfirlýsingunni segir meðal annars svo. ,,Þetta er algjörlega óásættanlegt og þessu verður að linna. Núverandi ástand má ekki viðhaldast og það stendur upp á okkur öll að sjá svo um að breyting verði á."
TIL BAKA
Liverpool FC fordæmir kynþáttafordóma!

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Af EM -
| Sf. Gutt
Bara Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Þrír Evrópumeistarar! -
| Sf. Gutt
Æfingaleikir sumarsins -
| Sf. Gutt
Annar nýr markmaður -
| Sf. Gutt
Milos Kerkez kominn til Liverpool -
| Sf. Gutt
Nathaniel Phillips heldur á braut -
| Sf. Gutt
Skjaldarleikurinn liggur fyrir! -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz keyptur fyrir metfé! -
| Sf. Gutt
Vitezslav Jaros lánaður
Fréttageymslan